Margir kannast við líkinguna á hinum ýmsu stjórnmálastefnum 20. aldarinnar við manninn sem á tvær kýr. Skrifræði er lýst svona:
Þú átt tvær kýr. Ríkið tekur þær báðar, drepur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir niður allri mjólkinni.
Þessi myndlíking kom upp í hugann þegar ég las frétt um að Seðlabankinn hefði sturtað niður rúmlega hálfum milljarði í dag til að verja krónuna falli. Þetta hljómar ekki eins og há fjárhæð miðað við Icesave og margt annað en setjum þetta aðeins í samhengi.
Yrði 540 milljónum varið í gjaldeyriskaup á hverjum bankadegi myndi það kosta Seðlabankann (ríkið) 130 milljarða yfir heilt ár.
Ætli það sé nokkuð óhagstæðara fyrir þjóðarbúið í heild að leyfa krónunni að falla og hætta að eyða skattpeningum í að halda henni uppi?
