Séra Gunnar Björnsson á Selfossi hefur ekki átt auðvelt uppdráttar eftir að upp komst að hann hefði ítrekað áreitt unglingsstúlkur kynferðislega í starfi. Biskup hefur úthlutað honum embætti sérþjónustuprests á Biskupsstofu.
Hvernig er það, er endalaust hægt að unga út nýjum prestsembættum á framfæri skattgreiðenda, sem eru hugsuð sem vistunarúrræði fyrir vandræðagemlinga og afbrotamenn innan kirkjunnar?
Gripið var til samskonar úrræðis þegar séra Flóki Kristinsson í Langholtskirkju átti í deilum við organista safnaðarins, Jón Stefánsson. Búið var til prestsembætti fyrir Íslendinga í London.
Það skal tekið fram að séra Flóki var ekki ákærður fyrir kynferðisleg brot. Honum var aðeins gefið að sök að vera einþykkur og erfiður í samstarfi og ágreiningur hans við organistann var að mestu á faglegu nótunum.
Hvað á ríkiskirkjan, þessi úrelta stofnun, lengi að fá að koma vandræðum innan sinna raða yfir á herðar ríkissjóðs?

Ég er ekki trúlaus…aðeins skráð utan trúarsöfnuða.
Takk fyrir þessar upplýsingar, Anna.